lovisamjoll.bloggar.is
Ertu Sexy?
1. Hvernig fötum gengur þú í??
a) Gallabuxum, bol og peysu. Einhverju þægilegu en flottu!!
b) Pilsi, sætum toppi og háum hælum!
c) Joggingfötum..
2. Geðveikt sætur gaur horfir á þig. Hvað gerirðu??
a) Horfi á hann á móti og brosi til hans :)
b) Roðna og horfi á gólfið - og reyni að pissa ekki í buxurnar.
c) Fer til hans og tala við hann..
3. Hvað veistu um strákinn sem þú ert hrifinn af?
a) Nafnið og að hann er í góðu formi. Hvað meira þarf maður að vita?
b) Allt. Just ask me ;)
c) Hverjir eru vinir hans og áhugamál..
4. Hann er að röfla um eitthvað sem þú hefur ENGAN áhuga á. Þú...
a) Truflar hann í miðju samtali.
b) Spyrð hann af hverju hann sé að tala um þetta :/
c) Starir á hann aðdáunaraugum. Hvaða máli skiptir það þó hann sé að röfla um þetta - það eina sem skiptir máli er útlitið...
5. Strákurinn sem þú ert að reyna við verður allt í einu rosa þögull. Þú...
a) Spyrð hann hvað sé að.
b) Leitar einhvern annan uppi - sem sýnir þér meiri áhuga.
c) Verður rosalega fúl.
6. Þú og vinkonur þínar...
a) Hangið bara saman og talið.
b) Talið um stráka, farið í Kringluna og skemmtið ykkur saman.
c) Eruð alltaf að rífast um eitthvað sem skiptir ekkli máli!
7. Hverju tekur þú fyrst eftir í fari stráka (í útliti)?
a) Augunum.
b) Rassinum grrr....
c) Nefinu
8. Þú gerir þig að fífli fyrir framan strákinn sem þú ert hrifin af.. Þú...
a) Roðnar og lætur þig hverfa.
b) Hlærð bara og reynir að gera lítið úr þessu.
c) Stendur upp og heldur áfram.
9. Strákurinn sem þú ert hrifin af lætur þig fá símanúmerið sitt. Þú...
a) þorir ekki að hringja og gleymir honum.
b) hringir strax og vilt fara á date með honum...
c) Bíður í nokkra daga og hringir svo til að chatta.
10. Þú ert oftast...
a) að versla - maður á aldrei nóg af fötum..
b) glápa á sjónvarpið eða hanga í tölvunni.
c) að hanga með vinum þínum.
Stig:
1. a 5) b 3) c 1)
2. a 3 )b1 )c 5)
3. a 5) b 1) c 3)
4. a5) b 3) c 1)
5. a 3 )b 5) c 1)
6. a 3) b 5 )c 1)
7. a 3 b) 5 c1)
8. a 1 )b 5) c 3)
9. a 1 )b 3) c 5)
10.a 3) b 1 )c 5)

Pínu sexy
10 - 24 stig
Þú gætir verið mjög sexy - ef þú værir bara með aðeins meira sjálfstraust. Hættu að hafa sífelldar áhyggjur af því sem aðrir hugsa og reyndu bara að einbeita þér að sjálfri þér.Trúðu á sjálfa þig!! Kynþokkafyllsta fólkið eru þeir sem eru þeir sjálfir ;) 
Sexy
25 - 39 stig
Þú veist það kannski ekki - en strákarnir bíða alveg í röðum eftir að fá að kynnast þér. Það er vegna þess að þú ert áhugaverð, skemmtileg og ánægð með sjálfa þig - og þessu tekur fólk eftir. Ok, stundum ertu óörugg en þú ert nógu sterk til að takast á við það.
Of sexy?
40 - 50 stig
Hvernig er best að orða þetta? Þú ert svo sexy að þú hræðir suma stráka burt. Það er alveg frábært að hafa sjálfstraustið í lagi en sumir strákar þora ekki að tala við þig - prófaðu að sýna þeim og því sem þeir eru að segja smá áhuga...
